Sextánda árið í röð breiðir HönnunarMars úr sér um allt höfuðborgarsvæðið dagana 24. – 28. apríl 2024.
Dagskrá hátíðarinnar spannar allt frá arkitektúr, grafískrar hönnunar til fatahönnunar, vöruhönnunar, stafrænnar hönnunar og allt þar á milli. Hátíðin er ein af borgarhátíðum Reykjavíkur og hefur farið fram árlega frá árinu 2009, þetta verður því í sextánda sinn sem gestum gefst tækifæri til að kynnast því sem er gerast í hönnun og arkitektúr þvert á fögin.
Alþjóðlega ráðstefnan DesignTalks er lykilviðburður hátíðarinnar og fer fram miðvikudaginn 24. apríl í Hörpu. Ráðstefnan er mikilvægur vettvangur fyrir innblástur og samtal um helstu þróun og breytingar knúin áfram af hönnun og arkitektúr – og ein sú skemmtilegasta!
Taktu dagana frá og fylgstu með þegar opnað verður fyrir umsóknir á hátíðina 2024 í haust.
Rifjaðu upp stemminguna frá HönnunarMars 2023 hér.
Almennt um HönnunarMars:
HönnunarMars er hönnunarhátíð þar sem framsækin hönnun og nýjungar leiða saman sýnendur og gesti. HönnunarMars boðar nýjungar og óvænta nálgun. Hátíðin er lífleg höfn hugmynda, ólíkra sjónarmiða og þekkingar, hreyfiafl sem auðgar og bætir samfélagið.
Hátíðin er skipulögð af Miðstöð hönnunar og arkitektúrs og hefur farið fram árlega síðan árið 2009. Hún er eitt helsta kynningarverkefni íslenskrar hönnunar og arkitektúrs innanlands sem og á alþjóðlegum vettvangi.
Mörg hundruð viðburðir, sýningar, fyrirlestrar, uppákomur og innsetningar eru ár hvert, skipulagðir af íslenskum hönnuðum og arkitektum, fyrirtækjum og stofnunum en þátttakendur eru um 400 talsins á hverju ári auk þess sem þátttaka erlendra gesta eykst með hverju árinu.
HönnunarMars er ein af fáum hönnunarhátíðum í heiminum þar sem ólíkar fagreinar hönnunar og arkitektúrs koma saman, allt frá fatahönnun til vöruhönnunar, arkitektúrs, grafískrar hönnunar, textílhönnunar, leirlistar, þjónustuhönnunar, stafræn hönnunar svo dæmi séu nefnd.
Fyrir fjölmiðla
Við aðstoðum fjölmiðla sem vilja fjalla um hátíðina með glöðu geði. Við getum bent á viðburði og sýningar sem gætu hentað hverjum miðli fyrir sig og komum fjölmiðlum i samband við viðkomandi verkefnastjóra og hönnuði sé þess óskað.
Hafið samband við alfrun@honnunarmars.is til að fá frekari upplýsingar.
Presskit & ljósmyndir
Hér eru myndir og upplýsingar um hátíðina 2024